Personal tools
Document Actions

Annar metdagur

Þátttökumetið var jafnað og tveir settu einkamet á Self-Transcendence Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 12. október


























English version

Þátttökumetið var jafnað á Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu í kvöld, 12. október, en átta hlauparar mættu og hlupu í skammdeginu.  Aðstæður voru reyndar að öðru leyti góðar og var stillt og hlýtt.

Þátttökumetið var ekki eina metið sem var slegið í kvöld, því Rúnar Páll Gígja og Víðir Sigurðsson settu báðir einkamet og bætti Rúnar sig um heilar 64 sekúndur.  Geri aðrir betur!

Annars voru úrslit fyrirsjáanleg; Andrés Ramón sigraði örugglega á tímanum 11:44.  Suren Suballabhason, sem hljóp nú í fyrsta sinn, varð í 2. sæti, rúmum tveimur mínútum á eftir Andrési.

Úrslit (millitími eftir 1 mílu sýndur innan sviga):
Karlaflokkur:
  1. Andrés Ramón 11:44 (5:49)
  2. Suren Suballabhason 13:47 (6:48)
  3. Upajukta Ágústsson 14:11 (6:56)
  4. Rúnar Páll Gígja 14:21 (7:05)
  5. Ágúst Örn Márusson 14:57 (7:06)
  6. Davíð Sigurgeirsson 15:46 (7:28)
  7. Víðir Sigurðsson 15:52 (7:24)
Kvennaflokkur:
  1. Steinunn Torfadóttir 19:40 (9:52)

page created by Suren Leosson last modified 2007-06-27 05:32 AM
website statistics