Personal tools
Global Home Ísland Fréttir Stelpur í stuði
Document Actions

Stelpur í stuði

Þrjár kjarnakonur skokka Self-Transcendence skemmtiskokk á sunnudaginn 20. mars.



English

 

Það voru þrjár kjarnakonur sem héldu uppi heiðri skokkaranna í Sri Chinmoy maraþonliðinu sunnudaginn síðasta, 20. mars - pálmasunnudag.  Þær Pujarini, Steinunn og Viktoría létu það ekki á sig fá þó vindurinn blési aðeins og kul væri í lofti, heldur skokkuðu af öryggi og höfðu gaman af.

 

Þessar valkyrjur kalla nú heldur ekki allt ömmu sína og nægir að nefna hetjudáðir Viktoríu sem hefur synt fjölda sjósunda, þar á meðal Breiðafjarðarsund.

 

Það er nú samt von fréttaritara að strákarnir láti ekki sitt eftir liggja og taki þátt í næsta skemmtiskokki, þó vissulega geti það fyllt hvern mann lotningu að skokka með þessum kjarnakonum.  Á sama hátt eru stelpurnar hvattar til að stíga niður af sínum goðumlíka stalli og taka þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu, en þar hefur engin kona hlaupið síðan 12. október 2004.

page created by Suren Leosson last modified 2007-06-27 05:32 AM
website statistics