Sunnudagsskokk hefjast
Fyrsta formlega Self-Transcendence skemmtiskokk á sunnudegi fór fram sunnudaginn 20. febrúar. Fjórir tóku þátt og hlupu 2 km
| English Meðlimir Sri Chinmoy maraþonliðsins hafa nú um nokkra hríð verið að hittast á sunnudögum til að skokka saman. Skemmtiskokk þessi hafa verið skemmtilegt innlegt inn í hlaupaumræðuna og því gerði fréttaritari srichinmoyraces.org/is sér ferð á hlaupið síðasta sunnudag. Það má því segja að hlaupið síðasta sunnudag hafi verið fyrsta formlega sunnudagsskokkið. Self-Transcendence skemmtiskokk á sunnudögum er ávallt hlaupið í Laugardalnum og hefst upp úr kl.12. Hlaupið er frá innganginum að Laugardalslaug og þar er líka endað. Síðastliðinn sunnudag var hlaupið í gegnum tjaldstæðin og grasagarðinn og til baka fyrir ofan Laugardalsvöllinn. Þessi hringur er 2 km. Reyndar var rætt um að breyta leiðinni, enda eru sunnudagsskokkin enn að þróast og breytast og hafa ekki náð sinni endanlegu mynd. Jafnframt var ekki tekinn formlegur tími á hlaupurunum síðasta sunnudag, en það kann líka að breytast. Fjögur tóku þátt síðasta sunnudag, systurnar Kristbjörg og Selma, aldursforsetinn Suballabha, sem einnig er skipuleggjandi hlaupanna og Rúnar Páll, en hann hefur getið sér gott orð fyrir frammistöðu sína í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupunum. Vinnu sinnar vegna á Rúnar erfitt með að komast í Tjarnarhlaupin og því eru sunnudagsskokkin tilvalin fyrir hann. |
