Personal tools
Global Home Ísland Fréttir Sunnudagsskokk 6. mars
Document Actions

Sunnudagsskokk 6. mars

Þátttökufjöldi hélst stöðugur í Self-Transcendence skemmtiskokki sunnudaginn 6. mars þrátt fyrir að fastagesti vantaði





English

Self-Transcendence skemmtiskokk sunnudaginn 6. mars var haldið í sól og blíðu.  Ágætis þátttaka var, en fjórir tóku þátt sem er metjöfnun frá því að farið var að fylgjast með skokkinu á þessari síðu (áður tóku fjórir þátt sunnudaginn 20. febrúar).  Þátttakan verður að teljast enn betri í ljósi þess það vantaði systurnar Selmu og Kristbjörgu og Rúnar Pál, en þau þrjú hafa alltaf tekið þátt frá því þessi síða hóf að fylgjast með skokkinu.

Í stað fastagestanna þriggja tóku þrjár kjarnakonur þátt, þær Steinunn, Viktoría og Pujarini.  Suballabha var eini fulltrúi strákanna í hópnum, en hann tók einmitt einnig þátt 20. febrúar.

Á dögum sem þessum skartar Laugardalurinn sínu fegursta.  Hreyfingin er nefnilega ekki einasti tilgangurinn með þessu sunnudagsskokki, heldur líka að njóta góðs félagsskapar í fallegu umhverfi, en Sri Chinmoy hefur margoft bent á og hvatt okkur til að eiga svona stundir saman.  Gjörið svo vel og skoðið fáeinar fleiri myndir sem fréttaritari okkar tók hér.

page created by Suren Leosson last modified 2007-06-27 05:32 AM
website statistics