Íslendingur hleypur í New York
Einn Íslendingur var meðal hlaupara í vikulegu Self-Transcendence 2 mílna hlaupi í New York, laugardaginn 16. apríl
| English Fleiri myndir hér More pictures here Það vildi svo til að fjöldi meðlima úr Íslandsdeild Sri Chinmoy maraþonliðsins var staddur í New York fyrir ekki allt svo löngu til að taka þátt í upphafi World-Harmony hlaupsins, laugardaginn 16. apríl síðastliðinn. Stofnandi World-Harmony hlaupsins, Sri Chinmoy, er einnig stofnandi hins alþjóðlega Sri Chinmoy maraþonliðs, sem kunnugt er, en maraþonliðið stendur fyrir fjölda annarra viðburða. Þar á meðal eru vikuleg Self-Transcendence 2 mílna hlaup á laugardagsmorgnum. Einn úr íslensku sendinefndinni, Upajukta Ágústsson, gerði sér lítið fyrir og tók þátt í hlaupinu og stóð sig garplega, eins og hans er von og vísa. Því miður glötuðust úrslit úr hlaupinu við ferðalagið heim yfir Atlantshafið, en ef til vill er það hlutaðeigandi fyrir bestu :) Aftur á móti er hægt að skoða hér fjölmargar myndir sem fréttaritari þessarar síðu tók. |
