Personal tools
Global Home Ísland Fréttir Sjósund
Document Actions

Sjósund

page created by admin last modified 2007-06-27 05:32 AM

Laugardaginn 24. júlí hóf Viktoría Áskelsdóttir, félagi í Sri Chinmoy maraþonliðinu, tveggja vikna sund yfir Breiðafjörð. Þetta er í fyrsta skipti sem nokkur manneskja reynir að synda yfir fjörðinn.

Með sundinu skorar hún á fólk að gerast heimsforeldrar og þannig styrkja þurfandi börn um allan heim. Heimsforeldrar er leið fyrir einstaklinga til að styrkja verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um allan heim og þar með fá tækifæri til að breyta lífi barna sem líða skort vegna fátæktar, þjást af sjúkdómum og heilsuleysi eða eru fórnarlömb stríðsátaka og náttúruhamfara. Hægt er að skrá sig sem heimsforeldri hér á síðunni.

Sundleiðin er um 62 km og mun Viktoría því synda um 4 km á dag. Sundið hófst við Lambanes hjá Brjánslæk kl. 15:30 og mun hún fara suður yfir fjörðinn og enda í Stykkishólmi þann 7. ágúst. Fylgdarbátar munu fylgja henni alla leið þar sem straumar geta verið harðir við sumar eyjarnar.

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, fylgdi Viktoríu frá bryggju og mun einnig synda síðasta spölinn með henni. Öllum er þó velkomið að slást í för með henni sér til hressingar!

Viktoría Áskelsdóttir varð 47 ára þann 25. júlí. Hún var því syndandi í um 10 gráða heitum sjó á afmælisdaginn.

Hægt er að fylgjast með sjósundinu, skoða myndir og dagbók Viktoríu á www.unicef.is/sund.

website statistics