Knattspyrna 2. apríl
Skoðið fleiri myndir hér More photos here Það var fámennt en góðmennt í vikulega fótboltanum hjá Sri Chinmoy maraþonliðinu laugardaginn 2. apríl. Þar mátti sjá sambýlismennina Rúnar Pál, Ágúst og Víði og Davíð lét einnig sjá sig. Andrés mætti svo þegar liðið var á leikinn. Sem fyrr sýndi Rúnar snilldartakta eins og við mátti búast og Andrés sýndi líka suður amerískan samba dans með knöttinn. Víðir var fastur fyrir í vörninni og komust menn ekki upp með neitt múður ef þeir reyndu að fara framhjá honum. Davíð og Ágúst stóðu lengstum í marki og sýndu öðru hvoru markvörslur á heimsmælikvarða Hægt er að skoða fleiri myndir hér |
